27 sep. 2020

Mótanefnd KKÍ hefur frestað tveimur leikjum í Domino‘s deild kvenna vegna faraldurs COVID-19, annars vegar leik Vals og KR sem átti að fara fram næsta þriðjudag og hins vegar leik Skallagríms og Keflavíkur sem settur var næsta miðvikudag. Þetta kemur til þar sem leikmannahópar Keflavíkur og KR eru í sóttkví. Ekki hefur verið tekin frekari ákvörðun um leiki þessara liða 3. október nk.
 
Jafnframt hefur nokkrum leikjum yngri flokka verið frestað vegna sóttkvíar.