30 sep. 2020

Mótanefnd KKÍ hefur frestað leik Þórs Ak. og Keflavíkur í Domino‘s deild karla sem fyrirhugaður var föstudaginn 2. október nk. Þetta er tilkomið þar sem  þrír leikmenn Keflavíkur eru í sóttkví fram yfir settan leiktíma. Leiknum hefur ekki verið fundinn nýr leiktími.