15 maí 2023

Stjarnan varð Íslandsmeistari 10. flokks stúlkna á föstudag með sigri á Keflavík í úrslitaleik í Blue höll Keflavíkur. Sigur Stjörnunnar var aldrei í hættu, en Stjörnuliðið leiddi frá fyrstu mínútu og vann með 39 stigum, 97-58. Þjálfari Stjörnunnar er Adama Darboe.

Kolbrún María Ármannsdóttir var valin maður leiksins, en hún skilaði 38 stigum, 19 fráköstum, 5 stolnum boltum og hitti úr 15 af 19 skotum sínum.

Til hamingju Stjarnan!