15 maí 2023

Stjarnan varð Íslandsmeistari 11. flokks drengja á föstudag með sigri á ÍR í úrslitaleik í Blue höll Keflavíkur. Leikurinn var þrælspennandi og skiptust liðin 13 sinnum á forystu og 9 sinnum var jafnt í leiknum. ÍR leiddi með þremur stigum í hálfleik, en góður seinni hálfleikur Stjörnunnar tryggði þeim 80-92 sigur. Þjálfari drengjanna er Ingi Þór Steinþórsson.

Viktor Jónas Lúðvíksson var valinn maður leiksins, en hann skilaði 33 stigum, 15 fráköstum og 3 vörðum skotum.

Til hamingju Stjarnan!