15 maí 2023

Valur varð meistari 4. deildar 10. flokks drengja á laugardag með sigri á Fylki í úrslitaleik í Blue höll Keflavíkur. Leikurinn var jafn lengst af jafn, en eftir að Valur náði forystunni létu þeir hana aldrei af hendi og sigldu sigri í hús, 79-62. Þjálfari drengjanna er Halldór Geir Jensson.

Samuel Alejandro var valinn maður leiksins, en hann skilaði 25 stigum, 12 fráköstum og 7 stolnum boltum.

Til hamingju Valur!