16 maí 2023

Hamar/Þór varð meistari 3. deildar 10. flokks drengja á laugardag með sigri á Val b í úrslitaleik í Blue höll Keflavíkur. Hamar/Þór leiddi allan leikinn og sigldu öruggum sigri í hús, 88-71. Þjálfari drengjanna er Halldór Karl Þórsson.

Halldór Benjamín Halldórsson var valinn maður leiksins, en hann skilaði 17 stigum, 19 fráköstum, 4 stoðsendingum og 2 stolnum boltum.

Til hamingju Hamar/Þór!