16 maí 2023

Stjarnan varð Íslandsmeistari 10. flokks drengja á laugardag með sigri á Breiðablik í úrslitaleik í Blue höll Keflavíkur. Sigur Stjörnunnar var öruggur, en þeir leiddu allan leikinn og höfðu að lokum 33 stiga sigur, 107-74. Þjálfari drengjanna er Snorri Örn Arnaldsson.

Atli Hrafn Hjartarson var valinn maður leiksins, en hann skilaði 23 stigum, 7 fráköstum og 12 stolnum boltum.

Til hamingju Stjarnan!