16 maí 2023

Tindastóll varð meistari 2. deildar ungmennaflokks karla á laugardag með sigri á Grindavík í framlengdum í úrslitaleik í Blue höll Keflavíkur. Leikurinn var þrælspennandi, og eins og áður sagði þurfti framlengingu til að fá niðurstöðu, en Tindastóll hafði sigur að lokum 94-91. Þjálfari drengjanna er Kalvin Lewis.

Örvar Freyr Harðarson var valinn maður leiksins, en hann skilaði 27 stigum og 9 fráköstum.

Til hamingju Tindastóll!