19 jún. 2023Íslenska U18 ára landslið stúlkna var að ljúka öðrum leik sínum á NM í Svíþjóð rétt í þessu og sóttu stelpurnar flottan sigur 68:58. Stelpurnar eru þá komnar með tvo sigra í fyrstu tveim leikjum sínum.

Emma Hrönn Hákonardóttir var stigahæst okkar stelpna í leiknum með 17 stig. Hildur Björk Gunnsteinsdóttir var með 15 stig og 7 fráköst, Heiður Karlsdóttir var með 12 stig og 9 fráköst. Þær stöllur úr KR Anna María Magnúsdóttir og Anna Margrét Hermannsdóttir voru með 8 stig hvor og Sara Líf Boama var með 6 stig og tók heil 17 fráköst.

Næsti leikur á morgun verður gegn öflugu liði Finnlands kl. 14:00 að íslenskum tíma.

Allar upplýsingar um mótið, tölfræði og annað er að finna á heimsíðu NM 2023:
nordicchampionship.cups.nu/en/start

#körfubolti