26 jún. 2023

Íslensku landsliðin í U18 ára drengja og U20 lið karla og kvenna eru í dag að ferðast á NM 2023 sem fram fer í Södertalje í Stokkhólmi. Keppni hefst á morgun 27. júní og lýkur 2. júlí. Íslensku liðin leika fimm leiki á mótinu, gegn Svíþjóð, Finnlandi, Danmörku, Noregi og Eistlandi á mótinu, fyrir utan U20 kvenna er Eistland ekki með lið að þessu sinni.

Leikjaplan liðanna á mótinu er hér fyrir neðan en hægt er að fylgjast með lifandi tölfræði frá mótinu sem og kaupa streymisaðgang einnig fyrir áhugasama.

Þá verður karfan.is á mótinu og flytur fréttir frá mótinu einnig á sínum veitum.

Heimasíða mótsins (Dagskrá, lifandi tölfræði og aðrar upplýsingar)
nordicchampionship.cups.nu

Streymi
Allir leikir aðgengilegir á baskettv.se gegn gjaldi
209 SEK allt mótið eða stakir leikir á 69 SEK.

Dómarar Íslands á mótinu eru þeir Birgir Örn Hjörvarsson, Bergur Daði Ágústsson, Jón Þór Eyþórsson, Sigurbaldur Frímannsson og Stefán Kristinsson. Kristinn Óskarsson fer sem dómaraleiðbeinandi fyrir Ísland.

U18 drengja · Íslenska liðið er þannig skipað:
Arnór Tristan Helgason · Grindavík
Birgir Leó Halldórsson · Sindri/Spánn
Birkir Hrafn Eyþórsson · Selfoss
Brynjar Kári Gunnarsson · Fjölnir
Friðrik Leó Curtis · ÍR
Hallgrímur Árni Þrastarson · KR
Hilmir Arnarson · Fjölnir
Karl Kristján Sigurðarson · Valur
Kristján Fannar Ingólfsson · Stjarnan
Lars Erik Bragason · KR
Viktor Jónas Lúðvíksson · Stjarnan
Þórður Freyr Jónsson · ÍA

Þjálfari: Lárus Jónsson
Aðstoðarþjálfarar: Nebojsa Knezevic og Davíð Arnar Ágústsson


U20 kvenna · Íslenska liðið er þannig skipað:
Agnes María Svansdóttir · Keflavík
Anna Lára Vignisdóttir · Keflavík
Diljá Ögn Lárusdóttir · Stjarnan
Elísabeth Ýr Ægisdóttir · Haukar
Emma Theodórsson · Bucknell, USA
Eva Rún Dagsdóttir · Tindastóll
Eva Wium Elíasdóttir · Þór Akureyri
Hekla Eik Nökkvadóttir · Grindavík
Marín Lind Ágústsdóttir · Arizona Western
Stefanía Tera Hansen · Fjölnir
Tinna Guðrún Alexandersdóttir · Haukar
Vilborg Jónsdóttir · Minot State
(Heiður Karlsdóttir · Fjölnir mun leika með liðinu á EM)

Diljá Ögn Lárusdóttir · Stjörnunni, var í lokahóp en meiddist í aðdraganda mótsins.

Þjálfari: Halldór Karl Þórsson
Aðstoðarþjálfari: Hallgrímur Brynjólfsson (Benedikt Guðmundsson er einnig aðstoðarþjálfari og verður á EM með liðinu, fer fyrst með U18 stúlkna á EM 28. júní).

U20 karla · Íslenska liðið er þannig skipað:
Ágúst Goði Kjartansson · Uni Basket Padeborn, Þýskaland
Alexander Óðinn Knudsen · Haukar
Almar Orri Atlason · Bradley, USA
Daníel Ágúst Halldórsson · Haukar
Elías Bjarki Pálsson · Njarðvík
Eyþór Lár Bárðarson · Tindastóll
Ísak Örn Baldursson · Fjölnir
Jonathan Sigurdsson · Brunswick, USA
Ólafur Ingi Styrmisson · Keflavík
Orri Gunnarsson · Haukar
Sölvi Ólafsson · Breiðablik
Tómas Valur Þrastarson · Þór Þorlákshöfn

Þjálfari: Pétur Már Sigurðsson
Aðstoðarþjálfarar: Hlynur Bæringsson og Dino Stipcic

#korfubolti