18 júl. 2023

Leikjadagskrá Subway og 1. deilda liggur nú fyrir og er hægt að nálgast á heimasíðu KKÍ. Það verður Subway deild kvenna sem mun hefja Íslandsmótið 2023-2024, en fyrsta umferð deildarinnar er fyrirhuguð 26.-27. september.  Subway deild karla hefst svo 5.-6. október. Keppni 1. deilda hefst í október, en karlarnir leika fyrst 6. október og konurnar 7. október.

Subway deild kvenna hefst á slag nýliðanna, þegar Þór Ak. tekur á móti Stjörnunni. Einnig mætast Grindavík og Fjölnir, Njarðvík og Keflavík, Breiðablik tekur á móti Íslandsmeisturum Vals, og Haukar og Snæfell mætast.

Í Subway deild karla taka nýliðar Álftaness á móti Íslandsmeisturum Tindastóls. Einnig mætast Grindavík og Höttur, Hamar og Keflavík, Þór Þ. og Valur, Njarðvík og Stjarnan, og Breiðablik og Haukar.

Hægt er að nálgast leikjadagskrá deildanna hérna. Vakin er athygli á því að þetta er tímabundinn vefur meðan unnið er að því að klára að innleiða nýtt mótakerfi.