18 júl. 2023

Leikjaplan deildarkeppni yngri flokka liggur nú fyrir, en það var sent út á þau félög sem eiga lið í keppni 9.-ungmennaflokks í síðustu viku. Öll félög hafa nú tíma til 10. ágúst að gera athugasemdir við leikjaniðurröðun, svo breytingar geta orðið á þeirri niðurröðun sem hefur verið send út.

Hægt er að skoða leikjaniðurröðun eftir flokkum og deildum hérna. Vakin er athygli á því að þetta er tímabundinn vefur meðan unnið er að því að klára að innleiða nýtt mótakerfi.

Hægt er að sjá skjal með öllum leikjum í öllum flokkum og deildum hérna. Vakin er athygli á því að skjalið er frá 11. júlí og allar breytingar sem gerðar eru eftir þá dagsetningu sjást ekki í þessu skjali.