2 ágú. 2023U16 ára landslið drengja ferðast í dag til Pitesti í Rúmeníu þar sem þeir munu taka þátt í B-deild Evrópumóts FIBA. U16 stúlkna er svo síðasta liðið í sumar sem fer á EM mót FIBA en þær ferðast út 8. ágúst næstkomandi.

Keppni hjá U16 drengja hefst 4. ágúst en Ísland leikur í riðli með Georgíu, Rúmeníu, Bosníu og Austurríki. Eftir riðlakeppnina verður leikið um sæti 1.-8. og 9.-21. 

Liðið hefur leik gegn Bosníu á föstudaginn kl. 17:30 að íslenskum tíma og stendur keppnin yfir frá 4.-13. ágúst.

Hægt er að sjá allt um mótið, dagskrá leikja, riðla og stöðu, lifandi tölfræði og opið beint streymi frá öllum leikjum á heimasíðu FIBA U16 EM mótsins:

www.fiba.basketball/europe/u16b/2023

Íslenska U16 landslið drengja er skipaði eftirtöldum leikmönnum:
Atli Hrafn Hjartarson · Stjarnan
Bjarki Steinar Gunnþórsson · Stjarnan
Björn Skúli Birnisson · Stjarnan
Eiríkur Frímann Jónsson · Skallagrímur
Frosti Valgarðsson · Haukar
Guðlaugur Heiðar Davíðsson · Stjarnan
Haukur Steinn Pétursson · Stjarnan
Heimir Gamalíel Helgason · Njarðvík
Kristófer Breki Björgvinsson · Haukar
Magnús Sigurðsson · Ármann
Orri Guðmundsson · Breiðablik
Sævar Alexander Pálmason · Skallagrímur

Logi Guðmundsson frá Breiðablik lék á NM en meiddist því miður og missir af EM í ár.

Þjálfari: Snorri Örn Arnaldsson
Aðstoðarþjálfarar: Sigurður Friðrik Gunnarsson og Friðrik Hrafn Jóhannsson
Sjúkraþjálfari: Alex Mar Bjarkason