7 ágú. 2023U15 ára landslið drengja og stúlkna ferðuðust til Finnlands í gær sunnudag þar sem þau taka þátt í landsleikja- og æfingabúðum með finnsku U15 landsliðunum. 

Verkefnið var fyrst haldið síðastliðið sumar og þóttist takast mjög vel og var mikil ánægja með verkefnið, bæði meðal leikmanna, KKÍ og finnska sambandsins á móti. Því var ákveðið að halda áfram með sama sniði og leika í ár tvö 10 manna lið drengja og tvö 10 manna lið stúlkna nokkra leiki gegn finnsku liðunum sem eru sett upp eins auk þess að æfa á milli leikja og leikdaga. Landsliðin dvelja og leika á Kisakallio-íþróttasvæðinu þar sem NM-mótin, og nú síðast NM-mót U16 ára 2023, hafa verið haldin á undanförnum árum.

U15 ára landslið Íslands eru fyrstu landslið hvers árgangs en þar kynnast leikmenn því hvað það er að vera í landsliði, fylgja dagskrá þjálfara, æfa, taka liðsfundi og undirbúa sig fyrir leiki og svo framvegis. Dvalið verður fram til 12. ágúst þegar liðin ferðast heim.

Lifandi tölfræði á að vera aðgengileg á basket.fi frá leikjunum og hægt verður að nálgast streymi frá leikjunum gegn vægu gjaldi fyrir áhugasama á: https://solidsport.com/basketfi

Fyrstu leikir eru á morgun þriðjudag 8. ágúst.

Íslenska U15 landslið drengja og stúlkna eru skipuð eftirtöldum leikmönnum:

U15 drengja
Ásgeir Örn Birgisson · Haukar
Bjarni Jóhann Halldórsson · ÍR
Björgvin Þór Ívarsson · Skallagrímur
Bóas Orri Unnarsson · Keflavík
Dagfinnur Leifsson · KR
Dagur Snorri Þórsson · Stjarnan
Daníel Davíðsson · Þór Akureyri
Hilmar Óli Jóhannsson · Sindri
Jakob Kári Leifsson · Stjarnan
Jökull Ólafsson · Keflavík
Jón Árni Gylfason · Skallagrímur
Lárus Björn Björnsson · Fjölnir
Lárus Grétar Ólafsson · KR
Logi Smárason · Laugdælir
Marinó Gregers Oddgeirsson · Stjarnan
Patrik Joe Birmingham · Njarðvík
Pétur Harðarson · Stjarnan
Róbert Nói Óskarsson · USA
Stormur Kiljan Traustason · Valur
Sturla Böðvarsson · Snæfell
Viktor Máni Ólafsson · Stjarnan

Þjálfari: Emil Barja
Aðstoðarþjálfarar: Gunnar Sverrisson og Björgvin Hafþór Ríkharðsson
Sjúkraþjálfari: Helgi Freyr Þorsteinsson

U15 stúlkna
Adda Sigríður Ásmundsdóttir · Snæfell
Alma Rós Magnúsdóttir · Keflavík
Ásdís Lilja F. Guðjónsdóttir · Keflavík
Berta María Þorkelsdóttir · Valur
Bo Guttormsdottir-Frost · Stjarnan
Dagný Logadóttir · Haukar
Emma Karólína Snæbjarnardóttir · Þór Akureyri
Hólmfríður Eyja Jónsdóttir · Njarðvík
Hulda María Agnarsdóttir · Njarðvík
Ingibjörg Sigrún Svaladóttir · Valur
Kristín Björk Guðjónsdóttir · Njarðvík
Kristrún Edda Kjartansdóttir · KR
Ninja Logadottir · Stjarnan
Rakel Rós Unnarsdóttir · Grindavík
Rebekka Rut Steingrímsdóttir · KR
Sara Björk Logadóttir · Njarðvík
Sara Líf Sigurðardóttir · Skallagrímur
Sigurbjörg Diljá Gunnarsdóttir · Keflavík
Tinna Diljá Jónasdóttir · Stjarnan
Þórey Tea Þorleifsdóttir · Grindavík

Þjálfari: Andrea Björt Ólafsdóttir
Aðstoðarþjálfarar: Lidia Mirchandani Villar og Jónína Þórdís Karlsdóttir
Sjúkraþjálfari: Rakel Róbertsdóttir

Fararstjóri er Sigrún Ragnarsdóttir frá KKÍ.