5 okt. 2023

Í kvöld hefst keppni í Subway deild karla þetta tímabilið með fjórum leikjum. Nýliðar Hamars taka á móti Keflavík, Grindavík fær Hött í heimsókn, Haukar heimsækja Breiðablik og í sjónvarpsleik kvöldsins eru það Njarðvíkingar og Stjarnan sem mætast. Allir leikirnir hefjast kl. 19:15. Annað kvöld eru það svo Þorlákshafnar Þórsarar sem taka á móti Valsmönnum. Umferðinni lýkur svo á sunnudag þegar Íslandsmeistarar Tindastóls heimsækja nýliða Álftaness.

Sjáumst á vellinum!