23 nóv. 2023

 

Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í tveimur agamálum sem henni hafði borist til úrlausnar.

Mál 5/2023-2024

Með vísan til ákvæðis b-liðar 1. mgr. 13. gr., reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Unndór Sigurðsson þjálfari, sæta eins leikja banni vegna háttsemi sinnar í leik Vals og Grindavíkur í 9. flokki drengja sem fram fór þann 8. október 2023.

Mál 10/2023-2024

Með vísan til ákvæðis b-liðar 1. mgr. 13. gr., reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Ingvi Þór Guðmundsson þjálfari, sæta eins leikja banni vegna háttsemi sinnar í leik KR/KV og Grindavíkur í ungmennaflokki karla sem fram fór þann 5. nóvember 2023.