29 nóv. 2023Í kvöld fer fram leikur London Lions Group Limited og Rutronik Stars Keltern frá Þýskalandi í EuroCup Women sem er ekki frásögu færandi nema fyrir þær sakir að þar mun Ísland eiga tvo fulltrúa. 

Þeir félagar Davíð Tómas Tómasson, FIBA dómari, og Rúnar Birgir Gíslason, FIBA eftirlitsmaður, verða saman að störfum í leiknum í kvöld sem fram fer í Copper Box Arena í London.

Rúnar Birgir verður eftirlitsmaður leiksins en Davíð Tómas verður að þessu sinni aðaldómari leiksins og meðdómarar hans verða þau Emma Perry frá Írlandi og Petr Blahout frá Tékklandi.

Leikurinn er í riðlakeppni I-riðils en London Lions hafa unnið alla fimm leiki sína í rðlinum en Rutronik Stars tvo af fimm.

Leikurinn verður í opnu beinu streymi í kvöld kl. 19:00 að íslenskum tíma:
https://www.fiba.basketball/eurocupwomen/23-24/game/2911/London-Lions-Rutronik-Stars-Keltern

KKÍ óskar þeim félögum Rúnari Birgi og Davíð Tómasi góðs gengis í sínum störfum.