3 jan. 2024Opnað hefur verið fyrir skráningu á KKÍ 1B og KKÍ 2B. 
SKRÁNING HÉR
 
Vakin er athygli á því að aðeins þeir sem hafa greitt fyrir námskeið fá að taka þátt. Við bendum á að hægt er að sækja styrki fyrir þjálfaranámskeiðum, en oft veita stéttarfélög styrki fyrir þátttöku á námskeiðum.
 
Gott er að hafa í huga að þeir þjálfarar sem hyggjast sækjast eftir því að fara í FECC þurfa hið minnsta að hafa klára þjálfarastig KKÍ 1 og 2 ásamt ÍSÍ 1 og 2.
 
KKÍ 1B | fjarnámskeið | hefst 30. janúar
KKÍ þjálfari 1B er kennt í fjarnámi og hefst 30. janúar 2024.

Námskeiðið er kennt er í fjarnámi. Í þessum hluta er meðal annars farið í:
Verkefni varðandi leikreglur í körfubolta. Ef þjálfarar vilja einnig sækja sér dómararéttindi þarf að bæta við verklegu dómaraprófi.

Mótafyrirkomulag KKÍ. 

Sögu körfuboltans.

  • Skipulag æfinga.
  • Fyrirlestur um þjálfun á Youtube.
  • Grein um þjálfun körfubolta.
  • Þátttakendur geta unnið verkefnin á sínum hraða, en öllum þátttum námskeiðsins skal lokið eigi síðar en 14. apríl 2024.

Þátttökugjald fyrir 1B er 18.000 kr. og skal greitt áður en námskeið hefst.
 
KKÍ 2B | fjarnámskeið | hefst 30. janúar
KKÍ þjálfari 2B er kennt í fjarnámi og hefst 30. janúar 2024.

Námskeiðið er kennt í fjarnámi. Í þessum hluta er meðal annars farið í:

  • Vettvangsnám.
  • Heimsókn til þjálfara þar sem fylgst er með æfingum hjá tveimur þjálfurum í meistaraflokki og vinna verkefni með samanburð á aðferðum þjálfara.
  • Þjálfarafyrirlestur á netinu þar sem unnið er verkefni upp úr fyrirlestri.
  • Leikgreining er þar sem þjálfari horfir á leik og greinir helstu atriði.
  • Lesa grein um þjálfun og vinna verkefni upp úr því.
  • Reglupróf II, þar sem þjálfari þarf að kynna sér leikreglurnar vandlega og leysa verkefni upp úr þeim.

Þátttakendur geta unnið verkefnin á sínum hraða, en öllum þátttum námskeiðsins skal lokið eigi síðar en 28. apríl 2024.

Þjálfarar þurfa að hafa lokið öllum verkefnum í 2B á því keppnistímabil sem námið er tekið.

Þátttökugjald fyrir 2B er 33.000 kr. og skal greitt áður en námskeið hefst.