19 mar. 2024VÍS bikarvikan hefst með undanúrslitum karla í Laugardalshöll í dag, en framundan er vika af spennandi og áhugaverðum leikjum. Það verða Álftanes og Tindastóll sem ríða á vaðið, en liðin mætast í undanúrslitum VÍS bikars karla kl. 17:15 í Laugardalshöll. Klukkan 20:00 er svo undanúrslitaleikur Keflavíkur og Stjörnunnar, en liðin sem vinna í dag mætast í bikarúrslitum karla kl. 16:00 laugardaginn 23. mars. Miðasala fer fram á stubbur.app og snjalltækjaappinu Stubbur.