22 apr. 2024

Opnað hefur verið fyrir skráningu á KKÍ 1A, en vakin er athygli á því að aðeins þeir sem hafa greitt fyrir námskeið fá að taka þátt. Við bendum á að hægt er að sækja styrki fyrir þjálfaranámskeiðum, en oft veita stéttarfélög styrki fyrir þátttöku á námskeiðum.

Gott er að hafa í huga að þeir þjálfarar sem hyggjast sækjast eftir því að fara í FECC þurfa hið minnsta að hafa klára þjálfarastig KKÍ 1 og 2 ásamt ÍSÍ 1 og 2.

KKÍ 1A | 31. maí-2. júní

SKRÁNING HÉR

KKÍ þjálfari 1 skiptist í þrjú námskeið A, B og C. KKÍ 1A er skipt upp í nokkra hluta, Áhersla er lögð á þjálfun minnibolta, byrjenda og barna 12 ára og yngri. Farið er yfir kennslufræði og nálgun á þjálfun barna með það að markmiði að þau haldi áfram og læri leikinn. Á námskeiðinu þjálfa þátttakendur eina stöð í úrvalsbúðum KKÍ, en fyrirkomulag þess verður kynnt frekar við upphaf námskeiðsins.

Þátttökugjald fyrir KKÍ 1A er 30.000 kr. ef skráning og greiðsla klárast í síðasta lagi 9. maí, en eftir það hækkar námskeiðsgjald upp í 43.000 kr.

Til að ljúka námskeiðinu þarf að sitja alla hluta þess.

KKÍ 2

Reynt verður að halda KKÍ 2 námskeið í lok ágúst eða byrjun september.

KKÍ 3 | 16.-18. ágúst (ekki staðfest)
Það verður KKÍ 3 námskeið með erlendum og íslenskum þjálfurum 16.-18. ágúst. Nánari upplýsingar um það námskeið verða sendar út fljótlega.
KKÍ 1A og 1C | lok ágúst
KKÍ 1C námskeið verður haldið í lok ágúst og verður auglýst betur þegar nær dregur.
KKÍ 1B og 2B | hefst 16. september
Fjarnámskeiðin KKÍ 1B og KKÍ 2B hefjast 16. september. Skráning verður auglýst þegar nær dregur. Frekari upplýsingar um þessi fjarnámskeið má finna á heimasíðu KKÍ, annars vegar um KKÍ 1B https://kki.is/fraedslumal/thjalfaramenntun/thjalfarastig-1/ og hins vegar um KKÍ 2B https://kki.is/fraedslumal/thjalfaramenntun/thjalfarastig-2/.