Noregur og Ísland mætast öðru sinni núna kl. 16:00 að íslenskum tíma en leikurinn fer fram í Bergen í Noregi. Um er að ræða seinni vináttulandsleik þjóðanna í tilefni af 50 ára afmæli norska sambandsins. 

Í gær léku f
imm leikmenn sinn fyrsta A-landsleik en það eru þeir Kristján Leifur Sverrisson, Emil Barja, Haukur Óskarsson, Collin Pryor og Danero Thomas.

Líkt og í gær verður leikurinn í beinni á Youtube-rás norska sambandsins og í lifandi tölfræði á netinu á www.basket.no.

 


#korfubolti