13 sep. 2001Alþjóðkörfuknattleilkssabandið, FIBA, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna ógnaratburðanna í Bandaríkjunum í fyrradag. Yfirlýsingin er svohljóðandi í íslenskri þýðingu: FIBA fordæmir hryðjuverk - Körfuknattleikheimurinn agndofa og sormæddur. FIBA er agndofa vegna atburðanna í Bandaríkunum í fyrradag og vottar bandarísku þjóðinni sína dýpstu samúð. Það er á stundum sem þessum, þegar við stöndum frammi fyrir slíkum grimmdarverkum, að við áttum okkur á því hvað íþróttirnar eru í raun léttvægar. Borisalv Stankovic, framkvæmdastjóri FIBA, hefur haft samband við Tom Jernstedt forseta bandaríska körfuknattleikssambandsins, David Stern yfirmann NBA og Ted Boehm formann undirbúningsnefndar heimsmeistarakeppninnar í Indianapolis á næsta ári og komið á framfæri við þá samúðarkveðjum og bænarorðum frá allri körfuknattleiksfjölskyldunni. Hjá FIBA hafa átt sér stað umræður um að fresta Ameríkukeppni kvenna sem nú fer fram í Brasilíu og Evrópukeppni kvenna sem á að hefjast í Frakklandi á morgun. Eftir miklar vangaveltur hefur verið ákveðið að báðar þessar keppnir skuli fara fram samkvæmt áætlun. Þótt FIBA finni til með þeim sem eiga um sárt að binda í Bandaríkjunum, þá þjónar frestun íþrótta og menningaratburða tilgangi hryðjuverkamanna, sem er að valda eins mikilli röskun og skaða og möguleg er á líf okkar allra. Einnar mínútu þögn verður fyrir hvern leik í Evrópukeppni kvenna á morgun og úrslitaleik Ameríkukeppninnar í virðingarskini við fórnarlömb hryðjuverkanna.