18 sep. 2001Starfsskýrslur ÍSÍ fyrir árið 2000 eru komnar út og kennir þar margra fróðlegra grasa. KKÍ er áfram fjórða stærsta sérsambandið innan ÍSÍ og eru iðkendur 5.621. Hefur þeim fækkað um 160 frá árinu 1999. KSÍ er stærst með 16.484, GSÍ með 9.007 og Hestaíþróttasamband Íslands með 7.365 iðkendur. Mikil fjölgun hefur átt sér stað innan þessara þriggja greina. Hægt er að sjá niðurstöður starfsskýrslna á [v+]http://www.isisport.is[v-] vef ÍSÍ [slod-]. Athyglisvert er að skoða iðkendatölur félaga innan KKÍ. Valur; fjölgun úr 98 í 152 KR; fækkun úr 198 í 142 ÍR; fjölgun úr 241 í 330 Fjölnir; fjölgun úr 67 í 207 Breiðablik; fækkun úr 280 í 177 Stjarnan; fjölgun úr 120 í 158 Haukar; fjölgun úr 209 í 233 Keflavík stendur í stað með 233 iðkendur Njarðvík stendur einnig í stað með 211 iðkendur Grindavík; fækkun úr 260 í 185 Skallagrímur; fækkun 193 í 171 Snæfell stendur í stað með 127 KFÍ; fækkun úr 234 í 145 Tindastóll; fjölgun úr 167 í 191 Þór Akureyri fækkun úr 175 í 133 Höttur; fjölgun úr 41 í 98 Hrunamenn; fjölgun úr 189 í 228 Hamar; fækkun úr 134 í 93 Þór Þorlákshöfn; fjölgun úr 99 í 117