10 mar. 2002KR-ingar eignuðust þrjá bikarmeistara hjá yngri flokkum um helgina en í dag lauk seinni degi bikarúrslitanna sem öll fóru fram með viðhöfn á Ásvöllum í Hafnarfirði. Auk KR urðu fjögur önnur félög bikarmeistarar um helgina, Haukar (2), Njarðvík, Fjölnir og Keflavík. Þetta er besti árangur KR-inga í bikarúrslitunum frá upphafi en þeir unnu sigur í unglingaflokki karla á laugardaginn og í dag bættu þeir svo við bikurum í 9. flokki karla og Drengjaflokki. Birkir Veigarsson og Darri Hilmarsson fengu báðir páskaegg í lok sigurs KR á Snæfelli, [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2002/00001490/14900401.htm[v-]75-30[slod-], í 9.flokki karla en þeir voru útnefndir menn leiksins. Birkir gerði 13 stig, tók 8 fráköst og gaf 4 stoðsendingar en Darri hitti úr 6 af 7 skotum sínum, skoraði 12 stig, tók 14 fráköst og gaf 5 stoðsendingar. Þetta var fjórði sigur KR í 9. flokki karla frá upphafi og eru Vesturbæingar sigursælastir frá upphafi í þessum flokki. Magnús Pálsson leiddi Fjölnir til sigurs í 11. flokki karla og var í lok leiksins valinn maður leiksins. Þetta var þriðja árið í röð sem Fjölnisstrákarnir vinna bikarinn í þessum árgangi, 2000 unnu þeir Grindavík í 9. flokki karla [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2000/00001031/10310401.htm [v-]61-42[slod-], í fyrra unnu þeir 10. flokk karla með, [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2001/00001286/12860401.htm[v-]69-66 [slod-] sigri á Keflavík undir merkjum Vals/Fjölnis og í dag unnu þeir Snæfell, [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2002/00001488/14880401.htm [v-]57-49[slod-], í úrslialeik 11. flokks karla. Magnús skoraði 30 stig, tók 15 fráköst og stal 6 boltum í leiknum í dag og er með 23,0 stig, 17,3 fráköst og 4,0 stoðsendingar að meðaltali í þessum þremur úrslitaleikjum. Jóel Ingi Sæmundsson var hetja KR í drengjaflokki þegar að hann kórónaði góðan leik sinn með því að skora sigurkörfuna gegn Njarðvík 0,8 sekúndum fyrir leikslok en KR vann upp sjö stiga forustu Njarðvíkur í hálfleik, 26-33 og vann [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2002/00001487/14870401.htm [v-]62-60[slod-] sigur í æsispennandi og skemmtilegum úrslitaleik. Jóel skoraði alls 19 stig í leiknum og hitti úr 7 af 11 skotum sínum, tróð meðal annars eftiminnilega í fyrri hálfleik og var í leikslok valinn maður leiksins. María Anna Guðmundsdóttir var valinn maður leiksins í Unglingaflokki kvenna en Keflavík vann flokkinn þriðja árið í röð og hefur María Anna verið með í öll þrjú skiptin. Keflavík hefur unnið 14 bikarmeistaratitla í þessum flokki og alls 20 í kvennaflokki. Keflavík vann Grindavík í úrslitaleik í dag [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2002/00001491/14910401.htm [v-]51-36[slod-] en 2000 unnu Keflavíkurstúlkur lið Grindavikur, [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2000/00001026/10260301.htm [v-]46-33[slod-] og í fyrra vann Keflavík lið ÍR/Breiðabliks í úrslitaleik, [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2001/00001288/12880301.htm [v-]44-40[slod-]. María Anna skoraði 13 stig, tók 6 fráköst og stal 5 boltum í leiknum auk þess að skora þrjár þriggja stiga körfur. Á laugardaginn urðu Haukar tvöfaldir meistarar í [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2002/00001493/14930301.htm[v-]9. flokki kvenna[slod-] og í [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2002/00001492/14920401.htm[v-]10. flokki kvenna [slod-] en þá fögnuðu einnig Njarðvíkingar sigri í [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2002/00001489/14890401.htm[v-]10. flokki karla[slod-] og KR-ingar unnu [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2002/00001486/14860401.htm[v-]Unglingaflokk karla[slod-]. Bikarmeistarar KKÍ 2002: Unglingaflokkur karla: KR Drengjaflokkur: KR 11. flokkur karla: Fjölnir 10. flokkur karla: Njarðvík 9. flokkur karla: KR Unglingaflokkur kvenna: Keflavík 10. flokkur kvenna: Haukar 9. flokkur kvenna: Haukar Það má finna allt um sögu bikarúrslitanna [v+]http://www.kki.is/greinar.asp?Adgerd=ein_grein&Recid=63[v-]hér[slod-] og hafa úrslit helgarinnar verið uppfærð þar.