18 mar. 2002Snæfell tryggði sér sæti í Úrvalsdeild í kvöld með sigri á KFÍ, 87-97 á Ísafirði. Snæfell sigraði í einvígi liðanna 2-0 því á föstudag sigraði liðið 89-75 á heimavelli og er því komið í Úrvalsdeild eftir tveggja ára veru í 1. deildinni. Í leiknum í kvöld byrjuðu heimamenn betur og voru yfir í hálfleik en glæsileg sveifla Snæfellinga í þriðja leikhluta sló Ísfirðinga út af laginu. Snæfell vann leikhlutann 35-16. Stigahæstir í liði heimamanna voru Krste Serafimoski með 24 stig og Sveinn Blöndal með 17 stig en í liði Snæfells átti Helgi R. Guðmundsson mjög góðan leik og skoraði 30 stig en bróðir hans Ólafur skoraði 14 stig.