20 mar. 2002Í kvöld kemur í ljós hvort UMFN eða Breiðablik fylgja Keflavík, KR og UMFG í undanúrslit Epson-deildarinnar. Leikur liðanna verður á Njarðvík kl. 20. Í undanúrslitum munu deildarmeistarar Keflavíkur mæta UMFG, nema Blikum takist að leggja Njarðvík í kvöld. Þá yrðu Blikar andstæðingar bítlabæinga í undanúrslitunum. Þá hefst einnig rimma KR og Keflavíkur í 1. deild kvenna í kvöld í KR-húsi kl. 20.