24 mar. 2002Njarðvík varð í dag Íslandsmeistari í 7. flokki karla en liðið vann alla fjóra leiki sína í úrslitaumferðinni. Í öðru sæti varð lið Breiðabliks og Keflvíkingar enduðu í þriðja sæti. Hjörtur Einarsson úr Njarðvík varð stigahæsti leikmaður úrslitaumferðarinnar en hann gerði alls 88 stig í 4 leikjum eða 22 stig að meðaltali í leik. Halldór Halldórsson úr Breiðabliki kom honum næstur en hann gerði 48 stig. Njarðvík vann 15 af 16 leikjum Íslandsmótsins í ár og er vel að sigrinum komið. Njarðvíkurstrákarnir gerðu alls 242 stig í leikjum fjórum úrslitaumferðinni sem gera 60,5 stig að meðaltali í leik og 100 stigum fleiri en andstæðingar þeirra skoruðu á þá. Úrslit lokaumferðarinnar sem fram fór í Laugardalshöll og Smáranum í dag og í gær má finna [v+]http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2002/00001568.htm[v-]hér[slod-]. Njarðvíkurstrákarnir vörðu Íslandsmeistaratitilinn frá því í fyrra en þá urðu þeir minniboltameistarar í sama árangi. Njarðvík vann öruggan sigur á Keflavík, 68-37, í síðasta leiknum þrátt fyrir að hafa misst fyrirliða sinn Rúnar Erlingsson, út puttabrotinn í leiknum á undan. Þjálfarar strákanna eru þeir Atli Geir Júlíusson og Brenton Birmingham. Íslandsmeistarar Njarðvíkur og stig þeirra í úrslitaumferðinni: Ólafur Ormsson 1, Jóhann Eggertsson 9, Kristinn Gíslason 4, Ragnar Ólafsson 36, Ingvar Jónsson 31, Rúnar Erlingsson, fyrirliði, 36 (í 3 leikjum), Hjörtur Einarsson 88, Freyr Guðmundsson 12, Anton Pálsson 3 og Elías Kristjánsson 22.