27 mar. 2002Útvarp Saga 94,3 mun frá og með 2. apríl 2002 bjóða upp á dagskrá sem er eingöngu byggð á fréttum, spjalli og sporti. Þar á meðal beinar lýsingar frá körfuboltaleikjum. Þekktir stjórnendur munu stýra gagnrýnni, pólitískri og þjóðfélagslegri umræðu um allt það sem efst er á baugi hverju sinni, auk umfjöllunar um íþróttir og fjölda beinna útsendinga frá íþróttaviðburðum. Þór Bæring Ólafsson flytur hlustendum Útvarps Sögu 94,3 ítarlegan íþróttapakka alla virka daga milli 17 og 18.30. Þór er margreyndur útvarpsmaður af yngri kynslóðinni með brennandi áhuga á öllum íþróttum. Þór mun með áhuga sínum og eldhuga leiða hlustendur inn í heim íþróttanna. Sportið verður einnig á dagskrá alla laugardaga kl. 12:30 - 18.30. Boðið verður upp á sérþætti um íþróttir, t.d. box, veiði, Formúlu 1, golf og hesta. Beinar útsendingar frá íþróttakappleikjum verða fimm kvöld vikunnar á Útvarpi Sögu og einnig á laugardögum. Leikjum í handbolta, körfubolta og knattspyrnu verður lýst beint svo og verður fylgst með öðrum leikjum sem í gangi eru innanlands og erlendis. Útvarp Saga - fylgist vel með sportinu