7 maí 2002Körfuknattleiksdeild VALS heldur öldungamót í körfuknattleik 23., 24. og 25. maí 2002.Mótið verður haldið í Íþróttahúsum Vals að Hlíðarenda. Keppt verður í lávarðadeild, 30 ára og eldri og kóngadeild, 40 ára og eldri. Leikmenn sem leikið hafa í vetur í Epson deild eða 1. deild eru ekki gjaldgengir í mótið. Leikið verður í riðlum á fimmtudeginum 23. maí frá kl. 18.00 og föstudeginum 24. maí frá kl. 17.00. Hver riðill á einum degi. Á laugardeginum 25. maí verður úrslitakeppni með þátttöku allra liða í mótinu. Að öðru leyti markast mótafyrirkomulag af fjölda þátttökuliða. Miðað verður við það að úrslitaleikur verði um kl. 17.00. Hvert lið leikur a.m.k. fjóra leiki og þar af minnst einn leik á laugardeginum. Riðlakeppnin raðar liðum í úrslitakeppnina. Sigurvegarar fá glæsilegan eignarbikar í verðlaun og auk þess verða verðlaunaveitingar í fljótandi formi að vanda. Á sunnudeginum verða seldar léttar veitingar á vægu verði að Hlíðarenda. Leikið verður að mestu eftir venjulegum körfuboltareglum, nema leikurinn verður 2 x 15 mínútur, og klukkan aðeins stöðvuð síðustu 2 mínúturnar í hvorum hálfleik. Til að tefja leikinn sem minnst í vítaskotum verður aðeins tekið eitt skot, sem gildir 1, 2 eða 3 stig eftir atvikum. Þátttökugjald er kr. 15.000.- fyrir hvert lið. Þátttökutilkynningar berist, fyrir 18. maí til undirritaðs (helst í tölvupósti). Torfi Magnússon, Grenimel 3, 107 Reykjavík, sími: 551 2523 Tölvupóstfang: tm@ismennt.is