14 maí 2002Dagana 17., 18. og 20. maí verða Ágúst Björgvinsson, unglingalandsliðsþjálfari og hinn 218 cm hái Pétur Guðmundsson, eini íslendingurinn sem hefur spilað í NBA-deildinni, með körfuboltaskóla á eftirfarandi stöðum. Á Neskaupsstað, föstudaginn 17. maí kl. 18:00-20:00. 10-15 ára. Krakkar geta skráð sig fyrirfram í síma 477-1181 fyrir hádegi. Á Egilsstöðum, laugardaginn 18. maí. Kl. 10:30-12:00, 8-11 ára. Kl. 13:00-16:00, 12-16 ára. Krakkar geta skráð sig fyrirfram hjá Gísla í síma 471-2205 eða 897-2205. Á Hvolsvelli, mánudaginn 20. maí, kl. 13:00-15:00. 10-15 ára. Krakkar geta skráð sig fyrirfram hjá Helga í síma 487-8607. Lögð verður áhersla á helstu undirstöðuatriði körfuboltans s.s. sendingar, skot og knattrak. Farið verður yfir helstu atriði samspils og mikilvægi þess bæði í vörn og sókn. Verðlaun verða veitt fyrir ýmsar aldursskiptar þrautir og að lokum fá allir boli merkta skólanum.