15 maí 2002Ný og endurskoðuð útgáfa af [v+]mbreglur.asp[v-]minniboltareglunum[slod-] er kominn á vefinn. Sjá tengilinn hér til vinstri. Um er að ræða nýjustu útgáfu FIBA á reglunum. Smávægilegar lagfæringar hafa verið gerðar á reglunum frá síðustu útgáfu, en þær eru talsvert ólíkar þeim reglum sem lengi vel giltu hér á landi og margir telja að fara eigi eftir. Sérstaklega er tekið fram þar sem séríslenskar ákvæði eru í gildi. Einnig er búið að breyta lítillega 37. og 44. grein reglugerðar fyrir körfuknattleiksmót, þar sem fjallað er um minnibolta karla og kvenna, til samræmis við minniboltareglurnar. Þjálfarar og dómarar eru beðnir að kynna sér nýju reglurnar gaumgæfilega.