16 maí 2002Ungmennalandsliði Íslands hefur verið boðið að taka þátt í sterku alþjóðlegu móti í borginni St. Michel sur Orge í Frakklandi dagana 18.-20. maí nk. Íslands taka Frakkland, Júgólslavía, Slóvenía, Þýskaland, Holland og Alsír þátt í mótinu. Þjálfari liðsins, Friðrik Ingi Rúnarsson, hefur valið eftirtalda leikmenn til þátttöku í mótinu en liðið er blanda leikmanna 18 til 21 árs. Nafn, félag, fæðingarár. Logi Gunnarsson, UMFN, 1981 Jón Arnór Stefánsson, KR, 1982 Helgi Magnússon, KR, 1982 Jóel Sæmundsson, KR, 1983 Axel Kárason, Tindastóli, 1983 Ólafur Aron Ingvason, UMFN, 1984 Guðmundur Jónsson, UMFN, 1984 Egill Jónasson, UMFN, 1984 Sævar Haraldsson, Haukum, 1984 Halldór Halldórsson, Keflavík, 1984 Þorleifur Ólafsson, Bremen, 1984 Jóhann Ólafsson, Bremen, 1983 Liðið heldur af landi brott 17. maí og kemur heim 21. maí. Fararstjóri í ferðinni verður Ísak Leifsson.