29 júl. 2002KKÍ stendur fyrir þjálfaranámskeiði dagana 7. - 10. ágúst. Þekktur bandarískur háskólaþjálfari og fyrirlesari, Fran Fraschilla, mun kenna á námskeiðinu. Fran mun jafnframt stjórna A-landsliði karla á æfingum, en liðið er að undirbúa sig undir Norðulandamótið sem fram fer í lok ágúst. Skráning á námskeiðið er með tölvupósti á kki@kki.is Verð á námskeiðið er kr. 5.000,- Dagskrá námskeiðsins er eftirfarandi. Miðvikudagur 7. ágúst - Íþróttahúsið Austurbergi kl. 20.00 - 22.00 Fran Fraschilla stjórnar landsliðsæfingu. Hér gefst þátttakendum á námskeiðinu frábært tækifæri til að sjá topp háskólaþjálfara að störfum. Fimmtudagur 8. ágúst - SMÁRINN - 18.00 - 19.30 og 20.00 - 21.30 Fran Fraschilla með fyrirlestra sem fjalla m.a. um hvernig við gerum leikmenn betri. Einstaklingsæfingar, tækniæfingar, fótavinna, handavinna. Áhersla lögð á bakverði og létta framherja. Jafnframt fjallar hann um varnarvinnu, hvernig vejast skal "pick´n roll", vörn við endalínu, skipta á hindrunum osfrv. Föstudagur 9. ágúst - SMÁRINN - 18.00 - 19.30 og 20.00 - 21.30 Fran Fraschilla með fyrirlestra sem verða framhald af því sem hann talaði um á fimmtudeginum. Áherslan verður lögð á framherja og miðherja. Jafnframt ræðir Fran um sóknarleik og leikkerfi. Laugardagur 10. ágúst - Íþróttahúsið Njarðvík 10.00-12.00 og 13.00 - 15.00. Fyrri hlutan nýtir Fran til að fara í gegn um sóknarleik, hraðaupphlaup (second area breaks) og leikkerfi (set plays). Síðari hluta námskeiðsins stýrir Fran landsliðsæfingu þar sem áherslan verður lögð á að fara í gegn um ýmiskonar æfingar (drills).