
5 nóv. 2015Aga- og úrskurðanefnd KKÍ hefur kveðið upp dóm sinn í einu máli sem lá fyrir hjá nefndinni. Mál nr. 3/2015-2016: „Með vísan til ákvæðis c. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga - og úrskurðarmál skal hinn kærði, Eric Julian Vise, leikmaður mfl. Grindavíkur, sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik Grindavíkur og Snæfells í meistaraflokki karla, sem leikinn var þann 29. október 2015." Úrskurðurinn tekur gildi á hádegi í dag fimmtudag.