21 okt. 2020

Reglur KKÍ og HSÍ um æfingar og keppni vegna COVID-19 hafa verið samþykktar af yfirvöldum. Þessar reglur taka gildi frá og með 20.10.2020.

Vakin er athygli á því að samkvæmt reglugerð heilbrigðisráðherra 1015/2020 og samþykktum reglum KKÍ og HSÍ má æfa á höfuðborgarsvæðinu svo framarlega sem nándarmörk eru virt og sameiginlegur búnaður sé ekki í notkun. Æfingar utan höfuðbborgarsvæðisins geta farið fram venju samkvæmt sé öllum reglum fylgt.

Reglurnar má sjá hér.