12 maí 2022

B lið 9. flokks drengja hjá Fjölni urðu í gær meistarar 4. deildar með sigri á Val b í úrslitaleik í Dalhúsum. Leikurinn var nokkuð jafn, en að lokum fór svo að Fjölnir vann 11 stiga sigur, 65-54. Þjálfari drengjanna er Hreiðar Bjarki Vilhjálmsson.

Sindri Valur Sigurðsson var valinn maður leiksins, en hann skilaði 19 stigum, 10 fráköstum, 3 stolnum boltum og hitti úr 9 af 12 skotum sínum.

Til hamingju Fjölnir!