13 mar. 2024

Þann 23. mars nk. stendur KKÍ fyrir unglingaráðsfundi, en fundurinn er ætlaður þeim sem koma að barna- og unglingastarfi félaganna. Mörg aðkallandi verkefni eru í starfi hreyfingarinnar og því leiðum við saman áhugasama aðila innan félaganna til að ræða hvernig við viljum skipuleggja og vinna með málefni yngri flokka. Skráning á unglingaráðsfundinn er enn opin, en við höfum einmitt hvatt tengiliði aðildarfélaga til að kynna fundinn innan sinna félaga og hvetja alla þá sem áhuga hafa á þessum málefnum og vilja ræða að koma á fundinn. Hér er skráningarhlekkur á fundinn.