14 mar. 2024

Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í agamáli sem henni hafði borist til úrlausnar.

Agamál 33/2023-2024

Með vísan til ákvæðis c-liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Helgi Ingason, sæta eins leikja banni vegna háttsemi sinnar í leik Aþenu/Leiknis R. og Laugdælinga sem fram fór í 2. deild meistaraflokks karla þann 10. mars 2024.