4 apr. 2024

Vegna slæmrar veðurspár laugardagskvöldið 6. apríl og fram á sunnudag 7. apríl hefur verið ráðist í breytingar á leikjadagskrá MB11 ára drengja. Þetta er gert svo liðin geti ferðast aftur heim um helgina. Vinsamlegast komið þessum upplýsingum áfram innan ykkar félags eins og þörf er á. Leikjadagskráin hefur einnig verið uppfærð á kki.is