4 apr. 2024

Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í þremur agamálum sem henni hafði borist til úrlausnar.

 

Agamál 38/2023-2024

Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Viktor Steffensen, leikmaður Fjölnis, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Fjölnir gegn Þróttur Vogum, sem fram fór þann 25. mars 2024.

Agamál 39/2023-2024

Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Mario Matasovic, leikmaður Njarðvíkur, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Keflavíkur gegn Njarðvík, sem fram fór þann 28. mars 2024.

Agamál 40/2023-2024

Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Halldór Garðar Hermannsson, leikmaður Keflavíkur, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Keflavíkur gegn Njarðvík, sem fram fór þann 28. mars 2024.