8 apr. 20248-liða úrslit Subway deildar kvenna hefjast í kvöld, mánudaginn 8. apríl, með tveim viðureignum og svo hefjast seinni tvær viðureignirnar á morgun þriðjudaginn 9. apríl.

Í kvöld fara fram fyrstu leikirnir í viðureignum Grindavíkur og Þórs Ak. og Njarðvíkur og Vals.
Á morgun hefja Keflavík og Fjölnir og Haukar og Stjarnan sínar viðureignir.

Gert er ráð fyrir að undanúrslit hefjist laugardaginn 27. apríl og sunnudaginn 28. apríl. Klárist allar viðureignir í þremur leikjum, þá verður horft til þess að hefja undanúrslit fyrr, ef kostur gefst að koma því fyrir í dagatali. Tímasetningar oddaleikja verða ákveðnar þegar fyrir liggur hvaða leikir, ef einhverjir, fara fram.

Allir leikir úrslitakeppni Subway deildar kvenna verða í beinni á Stöð 2 Sport.

· Lifandi tölfræði leikja er hérna
· Leikjaplan og tölfræði eftir leiki er hérna

Leikjaplanið:

(1) Keflavík – (8) Fjölnir
Leikur 1 – 9. apríl 19:30 (Blue höllin)
Leikur 2 – 13. apríl 15:00 (Dalhús)
Leikur 3 – 17. apríl 19:30 (Blue höllin)
Leikur 4 – 21. apríl 19:30 (Dalhús) *ef með þarf
Leikur 5 – 24. apríl 19:30 (Blue höllin) *ef með þarf

 
(2) Grindavík – (7) Þór Akureyri
Leikur 1 – 8. apríl 19:00 (Smárinn)
Leikur 2 – 13. apríl 17:00 (Höllin Akureyri)
Leikur 3 – 16. apríl 19:00 (Smárinn)
Leikur 4 – 20. apríl 17:00 (Höllin Akureyri) *ef með þarf
Leikur 5 – 24. apríl 19:00 (Smárinn) *ef með þarf

 
(3) Njarðvík – (6) Valur
Leikur 1 – 8. apríl 19:30 (Ljónagryfjan)
Leikur 2 – 12. apríl 19:30 (N1 höllin)
Leikur 3 – 16. apríl 19:30 (Ljónagryfjan)
Leikur 4 – 20. apríl 19:00 (N1 höllin) *ef með þarf
Leikur 5 – 24. apríl 19:30 (Ljónagryfjan) *ef með þarf

 
(4) Haukar – (5) Stjarnan
Leikur 1 – 9. apríl 19:00 (Ásvellir)
Leikur 2 – 13. apríl 19:00 (Umhyggjuhöllin)
Leikur 3 – 17. apríl 19:00 (Ásvellir)
Leikur 4 – 21. apríl 19:00 (Umhyggjuhöllin) *ef með þarf
Leikur 5 – 24. apríl 19:00 (Ásvellir) *ef með þarf


#korfubolti