10 apr. 20248-liða úrslit Subway deildar karla hefjast í kvöld, miðvikudaginn 10. apríl, með tveim viðureignum og svo fara seinni tvær fram á morgun fimmtudaginn 11. apríl.

Gert er ráð fyrir að undanúrslit hefjist mánudaginn 29. apríl og þriðjudaginn 30. apríl. Klárist allar viðureignir í þremur leikjum, þá verður horft til þess að hefja undanúrslit fyrr, ef kostur gefst að koma því fyrir í dagatali. Tímasetningar oddaleikja verða ákveðnar þegar fyrir liggur hvaða leikir, ef einhverjir, fara fram.

Allir leikir úrslitakeppni Subway deildar karla verða í beinni á Stöð 2 Sport.

· Lifandi tölfræði leikja er hérna
· Leikjaplan og tölfræði eftir leiki er hérna


Leikjaplanið:

(1) Valur – (8) Höttur
Leikur 1 – 10. apríl 19:00 (N1 höllin)
Leikur 2 – 14. apríl 19:00 (MVA höllin)
Leikur 3 – 18. apríl 19:00 (N1 höllin)
Leikur 4 – 22. apríl 19:00 (MVA höllin) *ef með þarf
Leikur 5 – 25. apríl 19:15 (N1 höllin) *ef með þarf


(2) Grindavík – (7) Tindastóll
Leikur 1 – 11. apríl 19:30 (Smárinn) 
Leikur 2 – 15. apríl 19:30 (Sauðárkrókur) 
Leikur 3 – 19. apríl 19:30 (Smárinn)
Leikur 4 – 23. apríl 19:30 (Sauðárkrókur) *ef með þarf 
Leikur 5 – 25. apríl 19:15 (Smárinn) *ef með þarf 


(3) Keflavík – (6) Álftanes
Leikur 1 – 11. apríl 19:00 (Blue höllin)
Leikur 2 – 15. apríl 19:00 (Álftanes)
Leikur 3 – 19. apríl 19:00 (Blue höllin)
Leikur 4 – 23. apríl 19:00 (Álftanes) *ef með þarf
Leikur 5 – 25. apríl 19:15 (Blue höllin) *ef með þarf


(4) Njarðvík – (5) Þór Þ.
Leikur 1 – 10. apríl 19:30 (Ljónagryfjan)
Leikur 2 – 14. apríl 19:30 (Icelandic Glacial höllin)
Leikur 3 – 18. apríl 19:30 (Ljónagryfjan)
Leikur 4 – 22. apríl 19:30 (Icelandic Glacial höllin) *ef með þarf
Leikur 5 – 25. apríl 19:15 (Ljónagryfjan)
*ef með þarf