11 apr. 2024

Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í þremur agamálum sem henni hafði borist til úrlausnar.

 

Agamál 42/2023-2024

Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Þórdís Rún Hjörleifsdóttir, leikmaður ÍR, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Stjörnunnar gegn ÍR, sem fram fór þann 2. apríl 2024.

Agamál 43/2023-2024

Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Tristan Alex Tryggvason, leikmaður KR/KV, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik ÍR gegn KR/KV, sem fram fór þann 2. apríl 2024.

Agamál 44/2023-2024

Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærða, Heiða Hlín Tryggvadóttir, leikmaður Þórs Akureyris, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Þórs Akureyris gegn Val, sem fram fór þann 3. apríl 2024.