6 maí 2024

ÍR b varð meistari 4. deildar 10. flokks drengja á sunnudag með sigri á Val b í úrslitaleik á Ásvöllum í Hafnarfirði. Eftir jafnan fyrri hálfleik tók ÍR öll völd og vann að lokum öruggan sigur.

Hörður Wehmeier var valinn maður leiksins, en hann skilaði 18 stigum, 4 stoðsendingum, 3 fráköstum og 2 stolnum bolum.

Til hamingju ÍR b!