6 maí 2024

Selfoss b varð meistari 2. deildar 12. flokks karla á sunnudag með sigri á ÍA í úrslitaleik í Blue höllinni í Keflavík. Leikurinn var lengst af jafn, þó Selfoss hafi leitt allan fjórða leikhluta.

Unnar Örn Magnússon var valinn maður leiksins, en hann skilaði 14 stigum og 9 fráköstum.

Til hamingju Selfoss!