20 maí 2025

Stjarnan varð Íslandsmeistari í 10. flokki drengja 12. maí síðastliðinn með sigri á Val. Stjarnan vann fyrsta leikinn á Hlíðarenda og tryggðu sér svo titilinn með sigrí í öðrum leik sem fór fram í Umhyggjuhöllinni. Leikurinn fór 117-93 Stjörnunni í vil. Þjálfari liðsins er Baldur Þór Ragnarsson.

Steinar Rafn Rafnarsson var valinn verðmætasti leikmaður úrslitanna, en hann skilaði að meðaltali 28,7 stigum, 6 fráköstum og 3,7 stoðsendingum.

Til hamingju Stjarnan!