28 maí 2025

Valur varð Íslandsmeistari í 11. flokki drengja 19. maí síðastliðinn með sigri á Njarðvík. Valur vann fyrsta leikinn á Hlíðarenda og tryggði sér svo titilinn með sigrí í öðrum leik sem fór fram í IceMar-höllinni. Leikurinn fór 91-96 Val í vil. Þjálfari liðsins er Ágúst S. Björgvinsson.

Páll Gústaf Einarsson var valinn verðmætasti leikmaður úrslitanna, en hann skilaði að meðaltali 19,7 stigum, 13 fráköstum og 7,3 stoðsendingum.

Til hamingju Valur!