
24 júl. 2025
Í dag hefjast æfingar hjá karlalandsliðinu fyrir EuroBasket sem hefst í lok ágúst. Hér fyrir neðan sjáið æfingarhópinn sem þjálfarateymið hefur valið til að mæta á fyrstu æfingarnar en svo verður skorið niður eftir því sem nær líður EuroBasket.
Fyrir utan æfingar þá verða fimm landsleikir spilaðir áður en farið verður á EuroBasket.
1.-4. ágúst fer liðið til Ítalíu og tekur þátt í móti ásamt heimamönnum, Pólverjum og Senegölum. Ísland mætir Ítalíu í fyrri leik ferðarinnar og fer það eftir úrslitum úr leik Pólverja og Senegala hvoru liðinu Ísland mætir í seinni leik ferðarinnar.
12.-16. ágúst fer liðið til Portúgal og mætir þar Portúgal og Svíþjóð
22. ágúst mætir liðið svo Litháen í lokaleiknum fyrir EuroBasket og verður leikið í Litháen. Það verður svo farið beint til Katowice í Póllandi á EuroBasket en þangað verður liðið að vera mætt 25. ágúst.
Æfingarhópurinn fyrir EuroBasket:
Almar Atlason – USA – 0 landsleikir
Frank Aron Booker – Valur – 4
Friðrik Leó Curtis – USA – 0
Bjarni Guðmann Jónsson – Stjarnan – 5
Elvar Már Friðriksson – Marousso, Grikkland – 74
Haukur Helgi Pálsson – Álftanes – 75
Hilmar Smári Henningsson – Stjarnan – 20
Jaka Brodnik – Keflavík – 0
Jón Axel Guðmundsson – Burgos, Spáni – 35
Kári Jónsson – Valur – 35
Kristinn Pálsson – Valur – 37
Mario Matasovic -Njarðvík – 0
Martin Hermansson – Alba Berlin, Þýskaland – 77
Ólafur Ólafsson – Grindavík – 52
Orri Gunnarsson – Stjarnan – 11
Ragnar Nathanaelsson – Hamar – 65
Sigurður Pétursson – Keflavík – 3
Styrmir Snær Þrastarson – Belfius-Mons, Belgía – 20
Sigtryggur Arnar Björnsson – Tindastóll – 37
Tryggvi Hlinason – Bilbao, Spánn – 69
Ægir Þór Steinarsson – Stjarnan - 91
Þórir Þorbjarnarson – KR – 29