21 ágú. 2025

Vegna spurninga og umræðna í ljósi þess að fyrsti leikur íslenska karlalandsliðsins í
körfuknattleik á EuroBasket fer fram gegn Ísrael telur KKÍ rétt að afstaða sambandsins komi
fram.

Þátttaka landsins á mótinu er á forræði FIBA Europe og FIBA sem einnig stendur fyrir
niðurröðum í riðla og leiki. Þjóðir sem taka þátt hafa eðli málsins samkvæmt ekkert um val á
mótherjum að segja. Á meðan IOC (Alþjóðlega Ólympíuhreyfingin) bannar ekki þátttöku
Ísraela þá er veik von um að FIBA Europe, FIBA eða önnur helstu álfu/heimssambönd
íþróttahreyfingarinnar banni þáttöku Ísraela, eins og staðan er núna.

Rétt er að fram komi að KKÍ hefur bæði innan FIBA Europe og FIBA ítrekað beitt sér gegn
ákvörðun þess að leyfa Ísrael að taka þátt í mótum að svo stöddu og mun áfram gera.
KKÍ telur ekki rétt að hætta við þátttöku á EuroBasket.

Ákvarðanir á borð við að hafna því að spila leik á mótinu myndu hins vegar hafa í för með sér
fyrirvaralausa brottvísun úr keppni auk hárra fjársekta og mögulegt bann við þátttöku í
komandi stórmótum á borð við EuroBasket og heimsmeistaramót.

KKÍ fordæmir að sjálfsögðu allt ofbeldi og mannréttindabrot hvar og hvernig sem þau birtast.
Íþróttir eru vettvangur til að byggja brýr og tengja samfélög, þær geta líka verið tækifæri til
að vekja umræðu. Ljóst er að slíkt gerist þó ekki með því að hætta þátttöku í alþjóðlegu
samstarfi. Önnur landslið í keppnisíþróttum á Íslandi og erlendis hafa tekið sömu eða
svipaða afstöðu.