
25 sep. 2025
Aga- og úrskurðarnefnd hefur komist að niðurstöðu í þremur agamálum sem henni hafði borist til úrlausnar.
Agamál 02/2025-2026
Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Agape Isiagbon Izekor, leikmaður Vals, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Vals gegn Stjörnunni/KFG, sem fram fór þann 16 september 2025.
Agamál 03/2025-2026
Með vísan til ákvæðis b. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Yngvi Gunnlaugsson, þjálfari Vals, sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik Vals gegn Stjörnunni/KFG, sem fram fór þann 16 september 2025.
Agamál 04/2025-2026
Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga- og úrskurðarmál skal hinn kærði, Árni Valtýr Helgason, leikmaður Hattar, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Fjölnis gegn Hetti, sem fram fór þann 20 september 2025.